Um TORT
Góð heilsa er dýrmæt og því er það mikið áfall að slasast. Slys geta leitt til mikilla breytinga í lífi fólks, líkamlegra sem og andlegra. Eftir slys getur tjónþoli orðið fyrir tímabundinni eða varanlegri tekjuskerðingu, jafnvel til frambúðar. Ef þú hefur lent í slysi skiptir miklu máli að hagsmuna þinna sé gætt af sérfræðingum á sviði skaðabótaréttar sem sjá til þess að þú fáir allt tjón þitt bætt. Við hjá TORT tökum meðal annars að okkur hagsmunagæslu vegna umferðar-, vinnu og frítímaslysa.